20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2231 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

1. mál, fjárlög 1987

Iðnaðarráðherra (Albert Guðmundsson):

Hæstv. forseti. Fyrir þá sem hafa á einhvern hátt kynnst þessum vanda er augljóst að þessi upphæð er ekki nógu há. En í trausti þess að hæstv. fjmrh. sjái til þess að það strandi ekki á framlögum úr ríkissjóði, verði þörf fyrir hærri upphæð en þá sem hv. fjvn. leggur til, segi ég nei.