20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2232 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

1. mál, fjárlög 1987

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég skil vel þær umræður sem fara fram undir liðnum atkvæðaskýring, en ég tel ástæðu til að hér komi fram að víða annars staðar í þessu fjárlagafrv. eru liðir sem eru tengdir þessum málum. Ég nefni unglingageðdeild sem nú er opnuð fyrst og fremst vegna þessa vanda. Fjöldi meðferðarstofnana verður opnaður út af þessum vanda með miklu meiri tilkostnaði en hér er verið að tala um. Ég tel að það sé ekki hægt að gera allt í einu og það sé engin skömm að því að fella þessa till. og segi nei.