20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2233 í B-deild Alþingistíðinda. (2139)

1. mál, fjárlög 1987

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Um langt árabil hefur verið veitt á fjárlögum ríkisins fjárveiting til þessa þáttar í sjúkra og neyðarflugi. Nú er gerð tillaga um að fella slíkt niður. Þetta er svo mikið byggðamál fyrir hinar dreifðu byggðir að það er vansæmd að mínu viti fyrir Alþingi að skera á og neita um liðsinni í þessum efnum. Ég segi já.