20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2236 í B-deild Alþingistíðinda. (2152)

1. mál, fjárlög 1987

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Þessi jörð ætlar að verða nokkuð fræg í þingsögunni eins og hv. 5. þm. Austurl. tók fram. Ég lít svo á að ef verður af sölu jarðarinnar verði hún boðin til sölu þeim sem hana vilja kaupa og komi allir aðilar þar til greina. Þar sem hreppsnefnd, jarðanefnd og þeir aðilar sem um málið fjalla samþykktu söluna á sínum tíma segi ég já.