20.12.1986
Sameinað þing: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2239 í B-deild Alþingistíðinda. (2167)

1. mál, fjárlög 1987

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég hef tekið þátt í afgreiðslu á þessu frv. og greitt atkvæði með eða móti ýmsum brtt. eftir atvikum, en nú þegar kemur að afgreiðslu fjárlaganna sem slíkra, sem sýna rekstrarhalla upp á tæpa 3 milljarða, treysti ég mér ekki til að greiða atkvæði með slíku frv. en vil heldur ekki fara að greiða atkvæði á móti því og greiði ekki atkvæði.