13.01.1987
Sameinað þing: 37. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forseti (Helgi Seljan):

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar þm. Jafnframt vil ég óska hæstv. forsrh., öllum alþm. svo og starfsfólki Alþingis gleðilegs árs og flyt þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári.

Ég býð alla velkomna til starfa á nýju ári. Samkvæmt forsetabréfi, sem forsrh. hefur hér flutt, er fundur settur í sameinuðu Alþingi.