13.01.1987
Neðri deild: 34. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2290 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)

275. mál, stöðvun verkfalls á fiskiskipum og á farskipum

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill nú enn ítreka við pallagesti að láta aðdáun sína á ræðumönnum í ljós með meiri hófsemi heldur en að klappa og endurtekur þá hugmynd sína að menn geymi þetta allt í hjarta sínu og hugleiði það síðar.