13.01.1987
Neðri deild: 34. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2304 í B-deild Alþingistíðinda. (2210)
275. mál, stöðvun verkfalls á fiskiskipum og á farskipum
Fjármálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Þegar málið er komið í þennan farveg og ljóst að samningsaðilar vilja semja og það hefur komið fram, það er ljóst að það er ætlunin og ákvörðun um að veita eðlilegt svigrúm fyrir samningsaðila til þess að takast á um það verk sem þeir eiga sannarlega að sinna sjálfir. er ástæðulaust að deila mikið um aukaatriði og formsatriði. Aðalatriðið er að þetta svigrúm verði veitt til raunhæfra kjarasamninga. Þess vegna er fullkomlega eðlilegt og ekkert fordæmalaust að ég hygg að málið fari til þingnefndar. Hún þarf ekki frekar en hún vill að taka það fyrir. Það er eðlilegt að samningsaðilar setjist niður, en ástæðulaust að gera fjaðrafok mikið út af formsatriði eins og þessu heldur skiptir öllu máli að menn taki á af fullri alvöru. Nú verður þetta svigrúm veitt, menn fá tækifæri til að sýna hvort þeir geta tekist á við verkefnið í frjálsum kjarasamningum. Það skiptir mestu máli og ekkert óeðlilegt við það að málinu sé að lokinni þessari umræðu vísað til sjútvn. Því fylgir engin hótun af hálfu hæstv. ríkisstjórnar eða Alþingis. Þess vegna mæli ég með því að sú málsmeðferð verði á höfð.