27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2549 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

263. mál, aðstoð við foreldra veikra barna

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hv. þm. hefur borið fram sjálfstæðar fsp. um gang byggingarframkvæmda á tveimur stöðum í bænum. Það eru vissulega byggingarframkvæmdir sem koma þessu máli við. En fsp. er þess eðlis að ég tel að það verði að koma sjálfstæð fsp. um þetta atriði og ég skal afla þessara upplýsinga. En svör við þessum spurningum fela ekki í sér beint svar við þeirri fsp. sem hér liggur fyrir á þskj. og ber að svara samkvæmt þingsköpum.