27.01.1987
Sameinað þing: 41. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2554 í B-deild Alþingistíðinda. (2374)
268. mál, skýrsla OECD um íslenska menntastefnu
Gunnar G. Schram:
Herra forseti. Aðeins örstutt athugasemd. Ég fagna því að þessi skýrsla hefur komið til umræðu á Alþingi. Eins og hæstv. menntmrh. vék að er óhjákvæmilegt að hún verði tekin hér til miklu ítarlegri umræðu en tilefni gefst til í fyrirspurnatíma. Það eru margar ábendingar mjög athyglisverðar sem fram koma í skýrslu þessara gesta og sumar þeirra alluggvænlegar þó ekki sé kveðið fastara að orði.
Ég vil aðeins nefna tvennt að því er varðar Háskóla Íslands. Fyrra atriðið er að helmingur stúdenta hættir námi eftir fyrsta árið og af þeim sem innritast í Háskóla Íslands útskrifast aðeins 25%. Það sjá allir hvílík sóun hlýtur að felast að baki þessum tölum fyrir Háskólann, fyrir þjóðfélagið en ekki síst fyrir námsmennina sjálfa. Hér eru vitanlega ýmis ráð sem grípa má til.
Í öðru lagi er það dómur skýrsluhöfunda, og það er mjög mikið íhugunarefni fyrir Háskóla Íslands og ekki síður fyrir Alþingi Íslendinga, sem stjórnar fjárveitingum til þessarar stofnunar, að rannsóknir við Háskóla Íslands séu á lágu stigi, beri miklum mun minni árangur, séu miklum mun minni að gæðum en búast mætti við af slíkri stofnun og þeir benda á ástæðurnar til þess sem m.a. eru að aðeins er um að ræða 215 stöðugildi, en Háskólinn telur 4500 stúdenta. Helmingur kennslunnar og vel það fer fram með aukakennurum sem hafa hana sem íhlaupavinnu flestir hverjir.
Hér er um alvarlegar ábendingar að ræða sem ber að taka alvarlega og ég þykist vita að menntmrh. muni beita sér fyrir umræðu um þessi mál á næstunni.