02.02.1987
Efri deild: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2658 í B-deild Alþingistíðinda. (2469)

292. mál, leigunám fasteigna

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um leigunám fasteigna vegna fundar leiðtoga Bandaríkja Ameríku og Sovétríkjanna. Nefndin hefur rætt frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt, en eins og kemur fram í nál. voru Eyjólfur Konráð Jónsson og Eiður Guðnason fjarverandi við lokaafgreiðslu málsins.