02.02.1987
Efri deild: 36. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2658 í B-deild Alþingistíðinda. (2471)

295. mál, fjáröflun til vegagerðar

Frsm. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. hefur skoðað þetta mál og mælir nefndin með samþykkt frv. Haft var samband við Ingólf Ingólfsson hjá Frama, stéttarfélagi leigubifreiðastjóra, og upplýsti hann að frv. þetta væri flutt að ósk þeirra sem það varðar, þ.e. fyrst og fremst leigubifreiðastjóra.