03.02.1987
Sameinað þing: 44. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2694 í B-deild Alþingistíðinda. (2519)
282. mál, hvalveiðar og hvalarannsóknir
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég ætla aðeins að undirstrika það að Íslendingar eru með þessum vísindaveiðum ekki að brjóta nein alþjóðalög eða alþjóðasamninga. Hins vegar þykir mér furðulegt að heyra hv. þm., þá tvo síðustu sem hafa talað, koma hér upp og leggjast gegn þekkingarleit, vísindarannsóknum og öflun vitneskju um lífkerfið og lífkeðjuna í hafinu umhverfis landið. Þetta þykir mér furðulegt og enn furðulegra þegar það kemur fram líka, eins og það gerði hjá hv. þm. Birni Dagbjartssyni, að í rauninni eigum við bara að beygja okkur fyrir villimönnum á borð við þá sem komu hingað s.l. sumar og unnu skemmdarverk. Það er ekki háreistur málflutningur, herra forseti.