04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2747 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)

124. mál, skipan opinberra framkvæmda

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill benda á að 4. dagskrármálið er um skipan opinberra framkvæmda, en af einhverjum ástæðum hafa þeir hv. þm. sem tekið hafa til máls, eftir því sem forseti best fær heyrt, rætt einkum um 5. dagskrármálið. En þetta skiptir kannske ekki öllu máli því að því kemur að við ræðum 5. dagskrármálið.