04.02.1987
Neðri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2752 í B-deild Alþingistíðinda. (2590)

125. mál, opinber innkaup

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti er í nokkrum vanda. Forseti hefur engan varaforseta og þó að hann vildi nú víkja úr forsetastóli og taka þátt í umræðum og svara fyrir þetta efni er það ekki hægt. Úr forsetastóli sé ég ekki ástæðu til þess að ræða þetta mál.