09.02.1987
Efri deild: 38. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2847 í B-deild Alþingistíðinda. (2646)
193. mál, fasteigna- og skipasala
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um fasteigna- og skipasölu eins og það hefur verið afgreitt frá hv. Nd. Efni þessa frv. fjallar um það að taka af öll tvímæli um að sá sem annast fasteigna- og skipasölu skuli þurfa að hafa ábyrgðartryggingu. Það er tvímælalaust sá vilji sem ætlast var til að fram kæmi í lögum sem samþykkt voru á síðasta Alþingi. En þegar átti að fara að setja reglugerð um þau, þá þóttu ákvæðin um þetta ekki nægilega afdráttarlaus, að einnig þeir, sem ekki þurfa nú að fá leyfi og hafa gegnt þessu starfi áður, þurfi að taka slíka tryggingu. Efni frv. fjallar um að taka þarna af öll tvímæli.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.