10.02.1987
Sameinað þing: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2885 í B-deild Alþingistíðinda. (2673)

314. mál, veiði kúfisks

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Sem svar við þessari fsp. vil ég segja að mér er kunnugt um að það fyrirtæki hefur fengið fyrirgreiðslu hjá Byggðastofnun, en sú fyrirgreiðsla er óviðkomandi þessu verkefni og óviðkomandi sjútvrn.