11.02.1987
Neðri deild: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2968 í B-deild Alþingistíðinda. (2718)

321. mál, vaxtalög

Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Býst hv. 3. þm. Reykv. við að ráðherra hafi á takteinum svör við hverri spurningu sem mönnum dettur í hug að bera hér fram? Ef þm. hefði óskað eftir svari við þessa umræðu á þessari spurningu sinni hefði ég aflað þess svars. Hv. þm. var eitt sinn, að vísu stuttan tíma, viðskrh. Ég er ekkert viss um að hann hafi haft svör á reiðum höndum við hverri spurningu sem er.