11.02.1987
Neðri deild: 42. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 2968 í B-deild Alþingistíðinda. (2719)

321. mál, vaxtalög

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka þolinmæði forsetans og vil bara segja að lokum þetta: Auðvitað gerum við ekki ráð fyrir því að hver ráðherra hafi svar við hvaða spurningu sem er sem mönnum kann að detta í hug þá og þá í þessum sal. En þetta var um kjarna málsins, hæstv. ráðh.