16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3029 í B-deild Alþingistíðinda. (2760)

193. mál, fasteigna- og skipasala

Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um breytingu á lögum um fasteigna- og skipasölu. Nefndin ræddi málið þegar það kom frá hv. Nd. og fór yfir þær umsagnir sem fyrir lágu um það, en allar þær umsagnir eru jákvæðar og leggja eindregið til að þetta frv. verði samþykkt óbreytt. Nefndin leggur til að svo verði.