16.02.1987
Efri deild: 40. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3034 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)
330. mál, Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna
Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna á þskj. 573.
Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir þeirri breytingu frá núgildandi lögum að í stað þess að 40% af ágóða Happdrættis Dvalarheimilis aldraðra sjómanna skuli renna í Byggingarsjóð aldraðs fólks skuli hann nú renna óskiptur til Dvalarheimilis aldraðra. Í frv. sem hæstv. félmrh. flytur á þskj. 591 er gert ráð fyrir því að þessi sjóður falli niður og þá leiðir af sjálfu sér að framlög til hans gera það einnig.
Hins vegar er í 1. gr. þessa frv. á þskj . 573 gert ráð fyrir því að lán og styrkir verði veitt úr Byggingarsjóði Dvalarheimilis aldraðra sjómanna til bygginga í þágu aldraðra um land allt.
Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.