23.02.1987
Neðri deild: 47. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3338 í B-deild Alþingistíðinda. (3022)

120. mál, þinglýsingalög

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breytingu á þinglýsingalögum, nr. 39 10. maí 1978. Þetta frv. hefur verið afgreitt frá Ed. og liggur hér fyrir með breytingu sem þar var gerð. Þetta frv. er fylgifrv. umferðarlagafrv. og fjallar um nauðsynlega breytingu á þinglýsingalögum ef heimild í umferðarlagafrv. um breytta skráningu ökutækja verður notuð til þess að gera hana framkvæmanlega.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.