24.02.1987
Sameinað þing: 55. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3374 í B-deild Alþingistíðinda. (3046)

6. mál, rannsóknir á botnlægum tegundum á grunnsævi

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég vil sem fyrsti flm. þessarar till. þakka hv. atvmn. fyrir þá afgreiðslu sem hún leggur til á þessari till. Mér sýnist að tillaga nefndarinnar um smávegis breytingu á till. sé fremur til bóta þannig að ég lýsi ánægju minni með þessa málsmeðferð af hálfu nefndarinnar og vil þakka fyrir að þessi till. hefur verið afgreidd út úr nefndinni með þeim hætti sem hér liggur fyrir.