02.03.1987
Efri deild: 45. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3575 í B-deild Alþingistíðinda. (3162)

18. mál, kosningar til Alþingis

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Af öllu illa ráðnu í þessu frv. er þetta verst ráðið svo sem reyndar kom fram í máli hæstv. forseta Sþ. og reyndar einnig, þó með

einkennilegum orðum væri, í máli hv. 11. landsk. þm. Öfugt við það sem þeir segja í endanlegri atkvæðagreiðslu, miðað við það sem þeir færðu rök fyrir í sínu máli, segi ég að sjálfsögðu nei.