03.03.1987
Sameinað þing: 57. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3607 í B-deild Alþingistíðinda. (3208)

356. mál, framtíð rásar tvö

Fyrirspyrjandi (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. kærlega fyrir hans svör. Það er mjög ánægjulegt að heyra það hjá honum að framtíð Ríkisútvarpsins virðist vera trygg og staða þess verður styrkt. Mig langar samt til að minnast á það sem kom fram í máli mínu áðan að halli á rekstri stofnunarinnar árið 1986 var um 150 millj. kr. og á fjárlögum ársins 1987 er 103 millj. kr. halli sem Ríkisútvarpinu er gert að bera með einhverju móti. Aðflutningsgjöldin eru ekki lengur Ríkisútvarpsins. Ég treysti því þess vegna að komið verði til móts við þetta ástand í fjármálum Ríkisútvarpsins. Ég þakka hæstv. menntmrh. kærlega fyrir svarið.