28.10.1986
Sameinað þing: 9. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 364 í B-deild Alþingistíðinda. (321)

20. mál, samningur milli Íslands og Bandaríkjanna

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Því miður var það nú þannig eins og við var að búast að hæstv. utanrrh. staðfesti það sem hér kom fram í minni ræðu áðan. Þessi samningur var gerður í tveimur eintökum. Bæði á ensku. Það hefur hins vegar verið tekin um það sú menningarlega ákvörðun í utanrrn., til að sýna þjóðlega reisn fyrir hönd Íslendinga, að samningurinn verði þýddur seinna á íslensku.