03.03.1987
Sameinað þing: 58. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3639 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)

332. mál, námsbrautir á sviði sjávarútvegs

Flm. (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Á þskj. 580 hef ég ásamt þeim hv. þm. Helga Seljan, Steingrími J. Sigfússyni, Guðmundi J. Guðmundssyni, Davíð Aðalsteinssyni, Karvel Pálmasyni, Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur og Þorvaldi Garðari Kristjánssyni flutt svohljóðandi þáltill., með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að menntamálaráðuneytið hlutist til um að innan framhaldsskólakerfisins verði skipulagðar námsbrautir á sviði sjávarútvegs og námsefni verði samið í sérgreinum þeirra brauta. Stefnt verði að sem mestri fjölbreytni í sjávarútvegsnámi í framhaldsskólunum með stuttum námsbrautum í fiskvinnslu og sjómannafræðum, fyrrihlutanámi sérskóla sjávarútvegs, þ.e. fiskvinnslu-, stýrimanna- og vélstjórnarnámi, og undirbúningsnámi fyrir þá skóla, auk námsbrauta sem lyki með stúdentsprófi. Markmið slíks náms væri að búa fólk undir störf í sjávarútvegi og að kynna íslenskan sjávarútveg.“

Þessari till. fylgir allítarleg grg. og ég held, með leyfi forseta, að ég lesi grg. sem framsögu fyrir þessu máli:

„Á s.l. hausti fór fram nokkur umræða um skólahald og menntun starfsfólks í sjávarútvegi. Þar bar mest á umfjöllun um skýrslu og störf nefndar sem menntamálaráðherra og sjávarútvegsráðherra skipuðu í janúar 1986 til að gera tillögur um stofnun sjávarútvegsskóla á framhaldsskólastigi, sjá fylgiskjöl.

Meginniðurstaða nefndarinnar var sú að stofna skyldi sjávarútvegsskóla í Reykjavík er tæki við hlutverkum Stýrimannaskólans, Vélskóla Íslands og Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði. Sjávarútvegsskólinn yrði sérskóli á framhaldsskólastigi. Undirbúningsnám að skólanum og nám á einstökum brautum gæti einnig farið fram við aðra framhaldsskóla landsins.

Í október s.l. var haldin ráðstefna þar sem tillögur ráðherranefndarinnar voru kynntar og ræddar. Síðan þá hefur ekki verið rætt um þessi mál á þeim grundvelli að efla sjávarútvegsnám frá grunnskóla til háskóla en umræðan beinst að háskólanáminu einu.

Sjávarútvegsdeild við Háskóla Íslands er sjálfsögð, en jafnframt er mikilsvert og jafnvel enn brýnna að þess sé kostur að hefja nám í sjómannafræðum og fiskvinnslu í efstu bekkjum grunnskóla en þó sérstaklega í fjölbrauta- og menntaskólum.

Meðan ekki er séð fyrir hvort sú umræða og tillögugerð sem uppi var á síðustu haustdögum né aðrar aðgerðir stjórnvalda skili árangri og þoki fram til úrvinnslu og framkvæmda þeirri stefnu sem þessi tillaga fjallar um telja flutningsmenn hana jafntímabæra og á tveimur fyrri þingum.

Tillagan er nú flutt í þriðja sinn á Alþingi. Fyrri tvö skiptin hefur hún ekki fengist útrædd þó að umsagnir þeirra er um hana fjölluðu hafi verið mjög jákvæðar.

Þegar tillagan var flutt á síðasta þingi fylgdi greinargerð sem hér birtist óbreytt:

„Um eða yfir 90% af fólki, sem vinnur við sjávarútveg á Íslandi, hefur ekki aflað sér menntunar í skóla til undirbúnings starfsins. Aðeins skipstjórnarmenn, vélstjórar og verkstjórar eru sérmenntaðir til sinna starfa og hafa þó verið tíðar undanþágur frá því.

Stór hluti þess fólks, sem vinnur þessi störf, er mjög vel þjálfaður og með mikla reynslu í sínum störfum. Íslenskur sjávarútvegur hefur hingað til haft á að skipa vel þjálfuðu starfsliði sem hefur aflað sér menntunar fyrst og fremst í starfi. Á þessu er að verða breyting. Færri og færri gera þessi störf að ævistarfi. Ungt fólk, sem áður fór eftir grunnskólanám til starfa við sjávarútveginn, á fiskiskipaflotanum eða í fiskvinnslustöðvunum, heldur nú flest áfram námi og stefnir að stúdentsprófi og síðar að einhverju sérnámi. Í fiskvinnslunni kemur endurnýjunin frá öðrum starfsstéttum og frá því fólki sem einhverra hluta vegna hefur ekki haldið áfram námi að loknum grunnskóla. Svipað á sér stað hvað varðar sjómannsstarfið.

Mörg undanfarin ár hefur vantað menn með vélstjórnar- og skipstjórnarréttindi á fiskiskip. Síðustu mánuði hefur einnig verið mikil fólksekla í fiskiðnaði. Léleg laun, ótrygg störf og ýmsir aðrir þættir eiga sinn hlut í því að fæla menn frá störfum tengdum sjávarútvegi á sjó og landi. En þar kemur fleira til.

Í framhaldsskólum er ekki boðið upp á fiskvinnslu- eða sjóvinnunám ef frá er skilin kennsla í vélfræði í tveimur fjölbrautaskólum. Segja má að með því námsefni, sem nú er í framhaldsskólum, sé unnið að því að útiloka ungt fólk frá námi sem tengist sjávarútvegi. Framhaldsskólarnir hafa hins vegar viðskiptabrautir, þjónustubrautir, iðnbrautir, heilbrigðisbrautir o.fl.

Með tilkomu fjölbrautaskólanna var gert ráð fyrir að þeir mundu sinna „fjölbreytilegu“ starfsnámi og búa ungt fólk undir það að taka þátt í atvinnuþróun og tileinka sér nýja starfshætti í aðalatvinnugreinum þjóðarinnar og - þá frekar en ekki síður - sjá nemendum fyrir kennslu í fiskvinnslu og sjóvinnu. Sú hefur þó ekki orðið raunin á. Enn fer stærstur hluti nemenda þessara skóla á bóknáms- og þjónustubrautir.

Við ýmsa grunnskóla á landsbyggðinni hefur verið komið á fót framhaldsdeildum í tengslum við fjölbrautaskóla. Þannig er það t.d. á Vesturlandi. Framhaldsdeildir hafa starfað við grunnskólana í Borgarnesi, í Ólafsvík, í Stykkishólmi og að Laugum í tengslum við Fjölbrautaskólann á Akranesi. Áformað er að þessi tengsl skólanna á Vesturlandi verði enn aukin.

Námsefni framhaldsdeilda þessara skóla hefur þó ekki tengst starfsnámi nema að mjög takmörkuðu leyti. Kennslan í þessum deildum hefur frekar stuðlað að fjölgun nemenda á hefðbundnum bóknámsbrautum. Sjálfsagt er ríkt í huga margra nemenda að nám sé fyrst og fremst bóklegt og framar öllu þurfi að „læra“ til hinna hefðbundnu gömlu háskólagreina. Þess vegna eru þær námsbrautir enn svo áhugaverðar. Hitt er jafnframt augljóst að allt of lítið, og sums staðar ekkert, hefur verið gert til að auðvelda ungu fólki starfsnám.

Sjávarútvegsnám er aðeins boðið fram í sérskólum sem tengjast öðru framhaldsnámi með takmörkuðum hætti. Þeir sérskólar eru nær eingöngu á Reykjavíkursvæðinu. Nám við þá skóla útheimtir óþarflega langar fjarvistir frá heimilum og heimabyggð margra nemenda miðað við að hluti námsins ætti sér stað á heimaslóð.

Það er ekki boðið upp á fiskvinnslu- eða sjóvinnunám sem valgrein í 9. bekk grunnskóla, ekki heldur í áðurnefndum framhaldsdeildum né fjölbrautaskólunum. Þar með eru þeir nemendur, sem vilja hefja framhaldsnám strax að loknu skyldunámi, raunverulega útilokaðir frá því að afla sér menntunar á sviði sjávarútvegs og sjávarútvegsframleiðslu á því aldursskeiði og á þeim vettvangi sem nemendur óska sér og er þeim eðlilegastur.

Þessi tillaga okkar gerir ráð fyrir að skipulagðar verði námsbrautir á sviði sjávarútvegs innan framhaldsskólakerfisins og er þá átt við framhaldsdeildir grunnskóla og fjölbrautaskóla og að námsefni verði jafnframt samið í sérgreinum þeirra brauta. Stefnt verði að sem mestri fjölbreytni í sjávarútvegsnámi í framhaldsskólum með stuttum námsbrautum í fiskvinnslu og sjómannafræðum, fyrrihlutanámi sérskóla sjávarútvegs, þ.e. fiskvinnslu-, stýrimanna- og vélstjórnarnámi, og undirbúningsnámi fyrir þá skóla, auk námsbrautar sem lyki með stúdentsprófi.

Kennsla og námsbrautir munu sjálfsagt verða breytilegar í fyrstu eftir skólum og fara eftir nemendafjölda og aðstöðu til kennslu. Um leið og stofnað yrði til framhaldsskólanáms á þessu sviði víða á landinu sköpuðust skilyrði fyrir fullorðinsnám, endurmenntun og námskeiðahald og með sömu kennslugögnum og framhaldsnám byggðist á. Leita þyrfti samstarfs við samtök sjómanna og fiskvinnslufólks og skólastjórnir sérskóla sjávarútvegsins um allt sem lýtur að skipulagningu og fyrirkomulagi þessa náms.

Eitt af því sem veldur brottflutningi ungs fólks frá landsbyggðinni er að sækja þarf nær allt framhaldsnám til stóru þéttbýlisstaðanna, og þá fyrst og fremst til Reykjavíkur. Að námi loknu er þetta unga fólk oft í minni félagslegum tengslum við sína heimabyggð en það umhverfi þar sem námið hefur verið stundað. Auk þess eru oft litlar líkur á því að heimabyggðin geti nýtt það nám sem sótt hefur verið í skóla þéttbýlisins.

Efling framhaldsdeildanna og fjölbrautaskólanna mun hamla gegn brottflutningi fólks af landsbyggðinni og styrkja byggð á viðkomandi stöðum. Kennurum og starfsliði mun fjölga og námstími í heimabyggð lengjast. Fjölgun sérmenntaðs fólks, bæði í hópi kennara og í sjávarútveginum, mun styrkja félagslegan grundvöll greinarinnar og leiða til framfara hvar sem slík þróun á sér stað.

Nýjar leiðir til náms, svo sem tillaga okkar gerir ráð fyrir, munu stuðla að mjög aukinni menntun á sviði sjávarútvegs og fiskvinnslu. Ungt fólk, sem hefur tileinkað sér kunnáttu til að takast á við nýjungar í rekstri og meðferð sjávarafla til að auka gæði og verðmæti hans, mun koma til starfa og styrkja þessar atvinnugreinar. Á því er ekki vanþörf nú og í framtíðinni. Að því verður að stefna að íbúar sjávarútvegsbyggðanna og það starfsfólk, sem við sjávarútveginn vinnur, hafi ekki síðri almenna menntun og sérmenntun vegna starfa sinna en fólk í öðrum starfsgreinum, jafnt í framleiðslu- sem í þjónustustörfum.“

Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að till. verði vísað til félmn.