04.03.1987
Neðri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3725 í B-deild Alþingistíðinda. (3338)

18. mál, kosningar til Alþingis

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Við sjálfstæðismenn höfum stutt þetta frv. Við teljum nauðsynlegt að þær breytingar sem hér er verið að gera á núgildandi lögum nái fram að ganga, en lýsum okkur jafnframt reiðubúna til að hefja nauðsynlega endurskoðun á þessari löggjöf strax á næsta þingi. Ég segi já.