04.03.1987
Neðri deild: 52. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3749 í B-deild Alþingistíðinda. (3357)
326. mál, lögskráning sjómanna
Samgönguráðherra (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Frv. til laga um lögskráningu sjómanna er samið af nefnd sem skipuð var á s.l. ári. Hefur hún lagt til að gerðar verði nokkrar breytingar frá gildandi lögum sem eru að stofni til frá 1961. Framkvæmd lögskráningar hefur verið töluvert gagnrýnd á undanförnum árum og hún ekki talin veita þá réttarvernd sem henni var ætlað og ýmsir hafa hvatt til endurskoðunar á lögum um lögskráningu og nú síðast fyrir nokkru öryggismálanefnd sjómanna í tillögum sínum sem hún skilaði af sér í október á s.l. ári.
Gildandi lög eru mjög ítarleg og um margt fullnægjandi að því er varðar lögskráningarkerfið og skyldu til lögskráningar. Þau eru hins vegar í ýmsum efnum óaðgengileg og óskýr og lítt til þess fallin að auðvelda framkvæmd lögskráningar. Það verður að hafa það hugfast að þeir sem lögskráningu annast eru mjög fjölbreyttur hópur og því er afar mikilvægt að lög um þessa stjórnvaldsathöfn séu skýr.
Ég tel fyrir mitt leyti að þessi endurskoðun hafi tekist vel. Lögskráning sjómanna hefur margháttaða þýðingu eins og allir vita og eftirfarandi megintilgang:
1. Lögskráning á að tryggja að þeir sem eru um borð í skipi hafi tilskilin réttindi eða undanþágu.
2. Skráður er siglingatími sjómanna.
3. Lögskráning á að tryggja að tryggingar skipverja séu í samræmi við lög og kjarasamninga.
4. Lögskráning tryggir sönnur á því hverjir voru á skipi ef skip ferst.
5. Lögskráning felur í sér könnun gagna um haffæri skips.
Ég tel sem sagt að þetta frv. hafi gert hin gömlu lög mun skýrari og það sé til mikilla bóta að lögfesta það. Efri deild var sammála um afgreiðslu þessa máls og lagði til að frv. yrði samþykkt óbreytt.
Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. samgn.
Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.