05.03.1987
Neðri deild: 53. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3759 í B-deild Alþingistíðinda. (3373)

Viðvera þingmanna

Forseti (Ingvar Gíslason):

Forseti vill svara því til að það er náttúrlega skylda allra þm. að sjá til þess að þingstörf fari vel fram. Forseti hefur ekki talið endilega hversu margir teljast til stjórnarinnar, enda veit ég ekki hvort forseti er yfirleitt dómbær á það. En það er fullmætt í deildinni og forseti hefur hugsað sér að taka fyrir mál. Það verður þá að ráðast hvort það tekst eða ekki.