09.03.1987
Efri deild: 51. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3818 í B-deild Alþingistíðinda. (3432)

340. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta mál. Það hefur nú þegar verið rætt held ég af öllum ræðumönnum í samhengi við síðasta mál. Meiri hl. nefndarinnar flytur nokkrar brtt. Þær hafa ekki í för með sér efnisbreytingar á ákvæðum frv. heldur eru þær fyrst og fremst fluttar til að gera orðalag skýrara. Síðan er sú skriflega brtt. sem menn þekkja og ég þarf ekki frekar að lýsa. Meiri hl. mælir með samþykkt frv.