09.03.1987
Neðri deild: 54. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3838 í B-deild Alþingistíðinda. (3480)

232. mál, Landkaupasjóður kaupstaða og kauptúna

Frsm. félmn. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. hv. félmn., sem hefur fjallað um frv. til laga um niðurfellingu laga nr. 54/1981, um Landkaupasjóð vegna kaupstaða og kauptúna. Hér er um að ræða frv. sem gerir ráð fyrir því, eins og kemur fram í lok grg. með frv., að Landkaupasjóður ríkisins verði sameinaður Lánasjóði sveitarfélaganna, en stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga samþykkti á fundi sínum, 24. október 1986, að höfðu samráði við stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga, að beina þeim tilmælum til hæstv. félmrh. að þetta gerðist.

Nefndin hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.