09.03.1987
Neðri deild: 56. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3852 í B-deild Alþingistíðinda. (3494)

196. mál, tollalög

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Till. hv. 3. þm. Reykv. er góðra gjalda verð og sú hugsun sem þar kemur fram, en hún er óþörf því ávallt er hægt að biðja hæstv. ráðh. um skýrslu um þessi mál. Þess vegna tel ég að hún eigi ekki heima í þessum lagatexta, hann sé nægur, og segi nei.