10.03.1987
Neðri deild: 60. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3914 í B-deild Alþingistíðinda. (3578)

388. mál, lögreglumenn

Landbúnaðarráðherra (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingar á lögum um lögreglumenn nr. 56/1972, með síðari breytingum. Í bókun með samningum milli Landssambands lögreglumanna og fjmrh. á s.l. ári var gefið fyrirheit þess efnis að dómsmrn. mundi beita sér fyrir því að láta leggja fyrir á næsta Alþingi frv. til l. um breytingar á lögum um lögreglumenn er fæli í sér heimild til að lækka eða fella niður skaðabótafjárhæð vegna tjóns sem lögreglumenn valda við skyldustörf og eru af völdum mistaka eða vanrækslu. Skyldur og störf lögreglumanna eru þess eðlis að þeir þurfa oftsinnis að bregðast skjótt við aðsteðjandi vanda eða ástandi sem rís skyndilega. Þá gefst sjaldan tóm til að leita fyrirmæla yfirboðara eða ráðrúm til mikillar athugunar.

Lögreglumenn eru í þeirri stöðu að geta valdið eignatjóni eða slysi af gáleysi sem ekki verður talið stórfellt. Á s.l. ári var ákveðið að vopna tiltekinn hóp lögreglumanna vegna öryggisvörslu á Keflavíkurflugvelli og ber sá hópur skotvopn að staðaldri við skyldustörf sín. Þau sjónarmið búa að baki þessari lækkunarheimild tjónsfjárhæðar að fjárhagur og aðstæður tjónvalds geta verið slík að honum sé gersamlega um megn að greiða tjónið allt eða hluta þess. Má segja að sanngirnis- og velferðarsjónarmið liggi til grundvallar þessu ákvæði. Réttarstaða lögreglumanna yrði verulega bætt ef þessi lækkunarheimild verður lögfest.

Ég legg svo til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.