11.03.1987
Sameinað þing: 61. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3965 í B-deild Alþingistíðinda. (3612)
93. mál, hagkvæmni útboða
Frsm. allshn. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um könnun á hagkvæmni útboða og nánari reglum um framkvæmd þeirra. Nefndin varð sammála um að leggja til samþykkt þessarar till. með brtt. sem hún flytur og hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta athuga þá reynslu sem fengist hefur undanfarin ár af hagkvæmni útboða á opinberum framkvæmdum. Jafnframt verði kannað hvort rétt sé að setja nánari og skýrari reglur um útboð á vegum hins opinbera og framkvæmd þeirra, m.a. um val á verktökum“.
Það má segja að með þeirri efnisbreytingu, sem hér er lögð til á till., sé það fyrst og fremst undirstrikað að könnunin fari fram og í ljósi þeirrar könnunar sem liggi þá fyrir verði teknar ákvarðanir sem ekki er að öllu leyti hægt að sjá fyrir hverjar verða fyrr en könnunin hefur átt sér stað.