11.03.1987
Efri deild: 58. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 3977 í B-deild Alþingistíðinda. (3635)

390. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Frsm. fjh.- og viðskn. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hér er um að ræða að staðfesta bráðabirgðalög sem sett voru á liðnu vori og hafa raunar gegnt þeim tilgangi sem þeim var ætlað en formsins vegna þykir eðlilegt að þau fái hér staðfestingu og nefndin er sammála um að svo skuli gert.