13.03.1987
Neðri deild: 63. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4163 í B-deild Alþingistíðinda. (3789)

119. mál, umferðarlög

Frsm. allshn. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Aðeins örstutt vegna ummæla síðasta hv. þm. Þar sem hann upplýsti að þessi till. væri komin frá Öryrkjabandalagi Íslands og rakti rök sem lágu að baki því sé ég ekki ástæðu til þess að leggjast gegn þeirri brtt. og tel þau rök sem þar voru borin fram vera fullgild.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.