16.03.1987
Efri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4220 í B-deild Alþingistíðinda. (3863)

392. mál, almannatryggingar

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég greiddi frv. til laga um lengingu fæðingarorlofs atkvæði mitt hér áðan og með því vildi ég styðja þann áfanga sem í því frv. felst. Þá greiðslutilhögun til kvenna í fæðingarorlofi sem það frv. sem nú er verið að greiða atkvæði um kveður á um og sem felur í sér áframhaldandi mismunun á fæðingarorlofsgreiðslum til kvenna get ég hins vegar ekki samþykkt. Ekki vil ég þó á neinn hátt bregða fæti fyrir þessi mál hér og mun því ekki greiða atkvæði um þetta frv.