16.03.1987
Neðri deild: 64. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4243 í B-deild Alþingistíðinda. (3901)
119. mál, umferðarlög
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Þegar notkun bílbelta var lögleidd taldi ég ekki nauðsynlegt að sektum yrði beitt, en ég er nokkuð viss um að reynslan hefur sýnt að menn fara ekki að þessum lögum. Heilsa manna og líf er meira virði en að svo megi við búa svo að ég segi nei.