17.03.1987
Efri deild: 69. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4414 í B-deild Alþingistíðinda. (4162)

347. mál, Útflutningslánasjóður

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Hæstv. forseti. Þegar mál þetta kom frá Nd. hafði verið gerð á því ein breyting. Það var rætt um eðli þessa félagsskapar í hv. nefnd hér í Ed., Útflutningslánasjóðsins. Hann er að sumu leyti kannske dálitið sérstæður, ekki hlutafélag vildu menn meina og kannske varla venjulegt sameignarfélag. Það voru orðaleikir um það hvað ætti að kalla þennan félagsskap og við í Ed. breyttum nú upphaflega forminu í samráði við ýmsa góða menn, en því var breytt aftur í Nd.

Ég held að það sé ástæðulaust að vera að þvæla málinu fram og til baka. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd.