17.03.1987
Efri deild: 69. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4416 í B-deild Alþingistíðinda. (4171)

430. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Frsm. meiri hl. landbn. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. meiri hl. landbn. en auk mín undirrita nál. Eyjólfur Konráð Jónsson, Davíð Aðalsteinsson og Þorv. Garðar Kristjánsson.

Eins og fram kemur í nál. hefur meiri hl. ekki lagt fram neinar tillögur til breytinga á frv. og með því að ég skýrði afstöðu flm. í umræðum hér í gær, en það eru sömu mennirnir og undirrita nál., þá sé ég ekki ástæðu til þess að fara nánar yfir efni og tilgang frv. en vísa til þess sem ég sagði þá.