17.03.1987
Neðri deild: 67. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4435 í B-deild Alþingistíðinda. (4216)

423. mál, vísitala byggingarkostnaðar

Frsm. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn, hefur fjallað um frv. til laga um vísitölu byggingarkostnaðar. Frv. gerir ráð fyrir því að vísitala byggingarkostnaðar verði reiknuð út mánaðarlega.

Málið var afgreitt með samhljóða atkvæðum í Ed. og fjh.- og viðskn. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.