18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4484 í B-deild Alþingistíðinda. (4323)

305. mál, Þjóðhagsstofnun

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég tel frumtillöguna, till. til þál. um undirbúning þess að leggja niður Þjóðhagsstofnun, þannig að ekki sé á neinn hátt gerlegt að samþykkja hana. Það á reyndar einnig við um brtt. og því segi ég nei.