18.03.1987
Sameinað þing: 65. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4484 í B-deild Alþingistíðinda. (4325)

305. mál, Þjóðhagsstofnun

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Ég styð þessa till. þar eð ég treysti á að hún muni leiða til ákveðinna grundvallarbreytinga á stjórnkerfi okkar án þess að ég spái beint í hvort það leiði til þess að Þjóðhagsstofnun sem slík verði lögð niður heldur að starfsemi ráðuneytanna og tengdra þjónustustofnana verði skipulögð með þeim hætti að þar verði hvorki um tvíverknað né óþarfavinnu að ræða. Því segi ég já.