18.03.1987
Efri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4511 í B-deild Alþingistíðinda. (4370)

418. mál, dráttarvextir

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. fjh.og viðskn. um frv. til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um dráttarvexti. Þetta frv. er fylgifrv. frv. til vaxtalaga, sem hér hefur hlotið umræðu í þessari hv. deild.

Meiri hl. fjh.- og viðskn. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.