19.03.1987
Neðri deild: 71. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4550 í B-deild Alþingistíðinda. (4424)

Afgreiðsla mála úr heilbr.- og trn. neðri deildar

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég vil einungis láta það koma fram að því er varðar frv. til laga um breytingu á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit að það er skylda samkvæmt núgildandi lögum að láta endurskoðun frv. ljúka fyrir 1. ágúst þessa árs. Ég legg það auðvitað í vald þingsins að meta hvort þeirri endurskoðun telst þá lokið með þessum hætti.