04.11.1986
Sameinað þing: 11. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

98. mál, sjálfvirkt tilkynningarkerfi fiskiskipa

Fyrirspyrjandi (Árni Johnsen):

Herra forseti. Ég hef lagt fram fsp. til hæstv. samgrh. um sjálfvirkt tilkynningakerfi fiskiskipa:

„1. Hvað líður þróun sjálfvirks tilkynningakerfis fyrir fiskiskip sem unnið hefur verið að um árabil við Háskóla Íslands?

2. Hvenær og hvernig er áformað að hrinda í framkvæmd notkun hins nýja búnaðar sem veldur byltingu í þessum þætti öryggismála sjómanna?"