19.03.1987
Neðri deild: 72. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4563 í B-deild Alþingistíðinda. (4459)

Starfslok

Forseti (Ingvar Gíslason):

Ég þakka hv. 3. landsk. þm. kærlega fyrir þau hlýju orð sem sögð voru í minn garð hér og ég endurtek þær heillaóskir sem ég hef þegar flutt þingdeildinni, þakka þingdeildarmönnum fyrir samstarfið og fyrir að hafa tekið undir þau hlýju orð sem mælt voru til mín af hv. 3. landsk. þm.

Þá er þessum fundi að ljúka og ég þakka enn fyrir þetta ágæta samstarf. - Fundi er slitið