19.03.1987
Efri deild: 74. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 4565 í B-deild Alþingistíðinda. (4467)

Starfslok

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Fyrir hönd okkar þingdeildarmanna vil ég þakka forseta fyrir góðar óskir í okkar garð. Ég vil líka sérstaklega þakka forseta ánægjulegt samstarf í hvívetna, umburðarlyndi og góða og röggsama fundarstjórn ævinlega. Ég hygg að okkur hafi verið ljúft að láta að hennar stjórn.

Ég tek undir óskir forseta og þakkir til starfsliðs þingsins og skrifstofustjóra fyrir vel unnin störf þessa síðustu daga þar sem mikið mæðir á öllum.

Ég ítreka enn að nýju góðar óskir okkar allra og þakkir til forseta nú þegar lýkur þessu kjörtímabili og ég færi henni og fjölskyldu hennar bestu óskir um leið og við þökkum samstarfið.

Ég vil biðja hv. þingdeildarmenn að staðfesta þessar óskir mínar og þessi orð til virðulegs forseta okkar með því að rísa úr sætum. - [Deildarmenn risu úr sætum.]