04.11.1986
Sameinað þing: 12. fundur, 109. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (476)

66. mál, könnun á valdi í íslensku þjóðfélagi

Flm. (Haraldur Ólafsson):

Herra forseti. Sú till. sem hér liggur fyrir til umræðu er samhljóða till. sem flutt var á síðasta þingi. Þar segir, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara fram könnun á valdi í íslensku þjóðfélagi. Könnunin skal fólgin í því að rannsaka og greina hvernig háttað er völdum og valdahlutföllum stofnana og samtaka, bæði opinberra og óopinberra. Könnun þessari skal lokið innan þriggja ára og niðurstöður hennar kynntar á Alþingi.“

Þessi tillaga er næsta einföld í framsetningu. Þar segir að ríkisstjórnin skuli hlutast til um að fram fari könnun á valdi í þjóðfélaginu og rannsakað verði og greint hvernig háttað er völdum og valdahlutföllum. Í stuttri greinargerð okkar flm., sem erum sex þm. Framsfl., er lagt til að Háskóla Íslands verði falið að gera könnun þessa og minnt á hve mikil sérþekking er fyrir hendi þar á öllu því er lýtur að tæknilegri og fræðilegri rannsókn á þjóðfélagi.

Hugtakið „vald“ nær yfir mörg atriði mannlegs samfélags. Vald hefur verið skilgreint sem stjórn eins á öðrum eða möguleikar eins til að koma fram vilja sínum þrátt fyrir andspyrnu. Í hugum margra er vald tengt ofbeldi og stundum talið vera nær því hið sama og yfirgangur og kúgun. Vald birtist stundum á þann hátt, en miklu oftar er því beitt í samræmi við þau lög og þær reglur sem þjóðfélagið hefur sett sér.

Stofnanir hvers mannlegs samfélags eru valdastofnanir þar sem reglur eru settar atferli einstaklinga og hlutföll hópa afmörkuð. Félög og samtök fara með völd af ýmsu tagi þótt oft og tíðum sé erfitt að greina áhrif þeirra í fljótu bragði. Það er ekki einvörðungu innan stjórnskipunarinnar sem um völd er að ræða. Uppeldiskerfið er þýðingarmikill valdhafi. Innan heimila og í skólum er völdum beitt á margvíslegan hátt.

Fjölmiðlar móta stóran hluta þjóðarinnar og hafa þannig gífurleg völd, fyrst og fremst með því að velja fyrir fólk fréttir, skemmtiefni og menningarviðhorf og viðhorf til umhverfis og alþjóðlegra deilumála og alþjóðlegra atburða.

Þegar rætt er um vald í þjóðfélaginu er í senn átt við beint lagalegt og réttmætt vald ríkisins og þeirra stofnana þess sem falið er að fara með vald og hið óbeina vald sem fólgið er í samtökum, fjölmiðlum og uppeldisstofnunum þar sem fjallað er um hagsmuni, innrætingu og mótun viðhorfa. Vald getur einnig verið dulið í siðum og erfðavenjum, trú og hjátrú.

Með þessum fáu orðum vil ég einungis benda á það sem helst ber að kanna. Aðferðirnar geta verið margvíslegar, en miða þó að því eina markmiði að fá glögga mynd af lýðræðisskipun okkar og þeim öflum sem leynt og ljóst takast á í þjóðfélaginu. Íslenskt þjóðfélag er fámennt, reyndar eitt af fámennustu menningarsamfélögum í heimi hér en þrátt fyrir það harla flókið og margbrotið. Við vitum mjög margt um þetta samfélag okkar, en margt er þó á huldu um gerð þess og innviði.

Það er skoðun flm. að könnun á valdi og valdastofnunum sé til þess fallin að auka að mun þekkingu okkar á íslensku þjóðfélagi og að sú þekking sé forsenda ýmissa umbóta. Þekking og skilningur á þjóðfélagsaðstæðum auðveldar allar ákvarðanir til hagsbóta fyrir land og lýð.

Ekki er með þessu verið að segja að upp verði byggt vísindalegt samfélag heldur hitt að því meiri þekkingu sem við hófum á eigin þjóðfélagi, þeim mun meir aukast líkurnar á því að okkur takist að forðast mistök í lagasmíð um þjóðfélagsmál.

Íslendingar hrósuðu sér oft af því að hafa útrýmt misrétti, fátækt og kúgun í landi sínu. Ýmislegt er rétt í þessum fullyrðingum en stundum hættir okkur til að taka fulldjúpt í árinni. Spurningarnar vakna hver af annarri. Er jafnréttið svo algjört sem við viljum trúa? Er búið að útrýma fátækt á Íslandi? Er engin kúgun til á landi hér? Hver og einn verðu að svara fyrir sig og leggja fram nýjar og nýjar spurningar. Það er einmitt einkenni á lýðræðisskipun þeirri sem við aðhyllumst að sífellt er verið að rýna í veruleika þjóðfélagsins, leita orsaka þess sem miður fer og reyna að bæta það. Í opnu lýðræðisríki er það skylda þegnanna að fá sem gleggstar upplýsingar um allt það er máli skiptir um þekkingu og skilning á því hvernig háttað er virkni þjóðfélagsins, þ.e. þeim öflum sem mestu ráða um hag og heill hvers og eins. Það er t.d. næsta augljóst að fátækt og misrétti er til komið vegna einhvers konar valdbeitingar, beinnar eða óbeinnar. Skipting þjóðarauðsins verður til vegna valdboða af margvíslegu tagi, með sköttum, framlögum, launum o.s.frv.

Fátækt á Íslandi er ekki tilkomin vegna lágra þjóðartekna heldur vegna ýmissa annarra orsaka sem rík ástæða væri til að kanna nánar. Misrétti er vegna valdbeitingar og valdskiptingar sem hyglir einum á kostnað annars. Við lifum í opnu þjóðfélagi og viljum forðast að loka því á nokkurn hátt. Forsendur þess eru að við séum ætíð reiðubúin að standa vörð um lýðræðið, málfrelsið, félagafrelsið, skoðanafrelsið. Við viljum láta þúsund blóm spretta en við viljum einnig vita sem mest um alla innviði þjóðfélagsins, þekkja þau öfl sem þar eru að verki bæði hin jákvæðu og neikvæðu.

Nú er mikið rætt um öryggi ríkja og m.a. hefur allmikið verið fjallað um eflingu öryggisvörslu hér á landi. Það er einnig mikið fjallað um vald fjölmiðla og nýjungar í þeim efnum vekja ýmsar spurningar um það hvernig mótunarferli er verið að koma á hér á landi.

Ég held að þau atriði sem ég hef hér nefnt séu mest um verð af þeim sem æskilegt er að könnuð séu. Það þarf að athuga á hvern hátt lög takmarka og fyrirskipa vald. Það þarf að athuga hvernig hagsmunahópar takast á, hvernig varið er skiptingu valds milli landshluta og héraða, hvernig komið er samspili atvinnustétta, vinnuveitenda og ríkis, sem sagt hið margslungna þjóðfélag þar sem staða einstaklingsins er oft erfið. Hann þarf að vita meira um þau öfl sem þar eru að verki og það þarf að kanna hið fína net tengsla og valdboða sem hver einasti maður er meira og minna flæktur í. Sú þekking á valdi, sem hér er lagt til að verði aflað, á að gefa okkur nákvæmari og betri mynd en það yfirborð sem við sjáum.

Í framtíðarkönnun þeirri sem nú er lokið við koma fram fjölmörg atriði sem til stuðnings eru rannsókn, sem hér er lagt til að framkvæmd verði, og einmitt þau atriði þar sem ég tel mestu skipta eru þau sem sýna stöðu hvers einstaks innan þjóðfélagsins, innan hópanna og í samspili við aðra einstaklinga.

Herra forseti. Þessi þáltill. snertir kjarnann í margvíslegri stjórnskipun og þar með lýðræðisskipun okkar. Það er von mín að þessi till. hljóti greiða leið í gegnum hið háa Alþingi. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að till. verði vísað til síðari umr. og hv. allshn.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.